Forsíða
Félagaskrá
Fréttir
Myndir
Gestabók
Spjallið
Tenglar

Síðast uppfært
25/10 ´07


Vetrarpartý
(25/10 ´07)

Samúðarkveðja
(20/10 ´07)
Vottum fjölskyldu, aðstandendum og vinum bifhjólamannsins Magnúsar Jónssonar sem lést í umferðarslysi við Bláfjallaveg, okkar dýpstu virðingu og samúð á þessum erfiðu tímum.
Kveðja, Bifhjólafélagið Skuggar Akranesi.



Hópkeyrsla 26.ágúst 2007
(24/8 ´07)
Sunnudaginn 26.ágúst (uppfærð dagsetning) verður á Akranesi farinn Hópkeyrsla til minningar um látna Bifhjólamenn.
Farið verður Akrafjallsveg þá leið sem strákarnir voru að fara til vinnu þegar slysið varð og verður boðið upp á kaffi og eitthvað með að keyrslu lokinni.
Aðal markmið Hópkeyrslunar er þó að minna á styrktarreikning mjög ungra barna Aðalsteins Davíðs sem lést á Akranesi í sumar.
Styrktarreikningurinn er í Landsbankanum á Akranesi og reikningsnúmerið er: 0186-15-380076 og kt. er 020775-3009.
Allir eiga að aka með háuljósin til að vera sýnilegri í dagsbirtunni.
Við þurfum að minna á mikla fjölgun hjóla á vegunum og því verði ekki breytt, því þarf að koma aukin fræðsla til allar ökumanna um aukið tillit til Bifhjóla í umferðinni.

Dagskráin er:
12:30 Safnast saman við Café Mörk.
14:00 Lagt af stað í hópkeyrslu.
Komið á leiðarenda og þegið kaffi og meðlæti.
Hvet alla til að mæta og láta aðra vita til að hjálpa okkur að sýna sem mesta samstöðu.

#588
Hafþór Pálsson
8650938


Hópkeyrsla 1.september 2007 (Ljósanótt)
(22/8 ´07)
Kæra hjólafólk
Ykkur er að venju boðið til grillveislu Arna og Olís á ljósanótt. Meðfylgjandi er dagskráin fyrir þann atburð.
Vonumst til að sjá sem flesta. Allir velkomnir.
Fyrir hönd Arna Bifhjólakúbbs Suðurnesja
Karl Einar
Ernir / Náttfari # 84

Dagskrá!
Mæting inn við Olís í Njarðvík laugardaginn 1. september kl. 12:30. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og gos frá kl. 13:00 til 14:00 í boði Olís.
Farið verður í hópkeyrslu frá Olís kl. 14:15 og hjólað léttan hring ekkert stopp á leiðinni þetta árið. Komið inn í Reykjanesbæ aftur um kl. 14:45 og hjólunum stillt upp við Samkaup fyrir hópkeyrsluna niður Hafnargötu. Lagt verður af stað kl. 15:00 frá Samkaup. Ferðin endar á SBK planinu. Í fyrra voru 300 hjól verða fleiri þetta árið?
Vonumst eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta. ALLIR VELKOMNIR

Samúðarkveðja
(29/7 ´07)
Vottum fjölskyldu, aðstandendum og vinum bifhjólamannsins sem lést í umferðarslysi á Biskupstungnabraut í gærkvöldi, okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum.
Kveðja, Bifhjólafélagið Skuggar Akranesi.



Samúðarkveðja
Aðalsteinn Davíð Jóhannsson (Alli)
(19/7 ´07)
Vottum fjölskyldu, aðstandendum og vinum Aðalsteins Davíðs Jóhannssonar (Alla), sem lést í umferðarslysi mánudaginn 16.júlí sl., okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum.
Kveðja, Bifhjólafélagið Skuggar Akranesi.



Hjólaferð N1-Nitro og postula
(5/6 ´07)
Laugardaginn 9.júní verður N1-Nitro ferð þar sem lagt verður af stað klukkan 11 frá N1-Nitro verslun að Bíldshöfða 9.

Allir bifhjólamenn nær og fjær eru boðnir velkomnir.

Smellið á myndina hér til hægri til að sjá auglýsinguna...

Bike-Night á Red Chili
(29/5 ´07)
Sæl öll
Veitingastaðurinn Red Chili, mun í sumar bjóða upp á Bike Night öll fimmtudagskvöld frá kl. 20.
Tilboðsseðill, kaffi og kakó á góðu verði, hjólamyndbönd og tónlist og það eina sem þú þarft að gera er að mæta á hjóli.
ATH að þessi kvöld eru opin öllu hjólafólki, ekki eingöngu Sniglum.
Red Chili er að Pósthússtræti 13, 101 Reykjavík.
Við vonumst til þess að þetta leggist vel í fólk og að við sjáum sem flesta á Red Chili í sumar.
b.kv,
Stjórn Snigla.
Red Chili veitingastaður

Heimasíða Red Chili


Hópkeyrsla Grindjána
(24/5 ´07)
Sælir félagar!
Okkur í Grindjánum bifhjólaklúbb og stjórn Sjóarans Síkáta langar að bjóða félögum úr öðrum klúbbum í heimsókn á sjómannadaginn þann 3.júní 2007.
Safnast verður saman á planinu við Bláa Lónið kl. 14:30 og lagt af stað stundvíslega.
Kl. 15:15 í hópkeyrslu inn á hátíðarsvæðið, þar stillum við hjólunum upp í raðir og höldum sýningu.

Með von um góðar undirtektir.
Hjólakveðja.
Kanslari Grindjána og stjórn Sjóarans Síkáta.
Logo Grindjána

Heimasíða Grindjána


Félagsfundur verður á Cafe Mörk á næsta þriðjudag, 8.maí, klukkan 20:30


Mál á dagskrá

  • 1. Logo
  • 2. hópferð/hópferðir í sumar
  • 3. skráning nýliða
  • 4. skoðað möguleika á myndatöku fyrir félagsmenn til að setja á síðuna okkar.
Uppl. Sveppi 8997481/6648587
Freysi 8497104


1. Félagsfundur Skugga árið 2007
Fyrsti félagsfundur Skugga árið 2007 var haldinn á Mörkinni á Akranesi 30.apríl síðastliðinn. Ekki er hægt að tala um að færri hafi komist að en vildu!!
Sex gamlir félagar mættu og einn nýr sem skráði sig í klúbbinn á fundinum.

Ýmis mál voru rædd:

  • 1. Félagsgjöld voru ákveðin 2000 krónur fyrir árið
  • 2. Freyr B. Garðarsson var settur með Sverri í stjórn Skugga
  • 3. Fundir verða áfram kl. 20:30 alla þriðjudaga á Mörkinni
  • 4. Á næsta fundi verður rætt um logo og skipulag ferða í sumar
  • 5. Ákveðið var að fara saman á sýningu Raftanna í Borgarnesi laugardaginn 5.maí ´07. Lagt verður af stað frá Olísnesti klukkan 14:00 !!
Raftasýning í Borgarnesi 5.maí 2007
Ákveðið var á félagsfundi Skugga, 30.apríl, að fara saman á sýningu Raftanna í Borgarnesi laugardaginn 5.maí. Lagt verður af stað frá Olísnesti klukkan 14 !!


Fjölmenni á Sumardaginn fyrsta

Fyrsti félagsfundur ársins 2007
Mæting er á Mörkinni Akranesi. klukkan 21:00 mánudaginn 30.apríl.
Nánari uppl hjá Sveppa í síma 6648587
Nú er komið að því að við hittumst og ræðum komandi sumar…
Allir áhugamenn um vélhjól velkomnir.

Fundarefni:
1. skipulag sumarsins 2007, (hugmyndir að ferðum í sumar)
2. logo fyrir félagið
3. félagsgjöld
4. innritun nýrra félaga
5. 1.maí ferð Sniglanna

Sjá fréttina á PDF formi (þarf uppsettan Adobe Reader)


Landsmót bifhjólafólks á Íslandi
1/3 ´07
Næsta sumar, helgina 6.-8.júlí verður landsmót bifhjólafólks haldið að Skúlagarði. Þetta verður 22. mótið sem haldið verður í óslitinni röð. Mótið hefur verið haldið víðsvegar um landið og höfum við ákveðið þá nýbreytni þetta árið að skýra mótið “Landsmót bifhjólafólks á Íslandi” Þetta er gert til að fá fleiri og fjölbreyttari hóp á landsmót. Mótið verður áfram haldið af Sniglum og í boði samtakanna.
Staðsetning þetta árið er valin að hluta til að fá cross og enduro fólk á svæðið, örstutt er í þeystarreykjasvæðið og auðvitað erum við öll í sama sporti. Markmiðið er að allir sem stunda hjólamennsku finnist þeir velkomnir á þetta stærsta mót ársins.
Nú þegar hef ég fengið fregnir af nokkrum sem eru búnir að skipuleggja ferð yfir hálendið að sunnan til að mæta á mótið. Meðal þess sem boðið er upp á er leikjadagskrá, böll, myndasýningar og margt fleira, einnig er súpa á föstudagskvöld og kvöldmatur á laugardagskvöld. Leikjadagskráinn verður með nýju sniði og verða þar til dæmis nýir leikir fyrir cross og endurohjól.
Allar hugmyndir, tillögur og spurningar eru velkomnar.

Kveðja
Landsmótsnefnd

Jóhann Freyr Jónsson
S:8663500
E-mail: joi@ic.is

Dagrún Jónsdóttir
S: 8217470
E-mail: harley1931@isl.is

Svandís Steingrímsdóttir
S: 8483078
E-mail: sallys@simnet.is


Andri Már - Minningarsíða
30/11 ´06


Meira varðandi vídeóin
7/11 ´06
Minnkaði aðeins vídeóið af Freysa með gæsina til að það myndi hlaðast hraðar - skráin var í stærri kantinum.
Kveðja, Bjarki vefstjóri


Vídeóin
25/10 ´06
Smá breyting á hvaða formi vídeóin birtast. Skoðið endilega breytingarnar. Veljið "Myndir" og smellið á myndböndin.
Kveðja, Bjarki vefstjóri


Félagatal
6/9 ´06
Félagatal Skugga er nú komið út á netið. Látið mig endilega vita ef eitthvað er rangt þarna og/eða mætti betur fara. Einnig vantar mig miklu meira af myndum af ykkur og hjólunum ykkar.... Svo sendið mér endilega myndir í tölvupósti t.d. Netfangið mitt er, bjarkih@simnet.is
Kveðja, Bjarki vefstjóri


Heimasíðan í loftið
5/8 ´06
Ný heimasíða Bifhjólafélagsins Skuggar fór í loftið í dag. Vil ég óska Skuggamönnum til hamingju og verið endilega duglegir að senda mér myndir og annað efni sem tengist félagsstarfinu. Getið sent mér einstaka myndir hingað: bjarkih@simnet.is, en setjið annars á geisladisk og látið bara Sverri hafa það eða komið því til mín.



Vefstjóri (webmaster): Guðmundur Bjarki Halldórsson - http://www.bjarkih.org
Netfang (e-mail): bjarkih@simnet.is